Hægri varúð - Afleggja

Hægri varúð - Afleggja

Hvað viltu láta gera? Afleggja hægri varúð í hverfinu og setja biðskyldu þ.s. mjög margir vita ekki hvað þetta þýðir t.d. við gatnamót Austurbrúnar og Dragavegar, Efstasund og Hólsvegur, sjá mynd, og á fleiri stöðum og þetta veldur óöryggi og skapar hættu. Víða hefur verið sett biðskylda þ.s. slys hafa verið. Hvers vegna viltu láta gera það? Minnka líkur á slysum og tilltölulega ódýr aðgerð.

Points

Hægri regla veldur óþarfa ruglingi, hliðagötur fá forgang á götur með meiri umferð, t.d. Nökkvavogur/Karfavogur á Snekkjuvog. Hvimleitt að hafa hægri reglu við Vogaskóla, þar sem mörg börn eru á ferð. Kostnaður við þessa útfærslu er hverfandi (4 umferðarskilti).

Þetta myndi líka þýða aukin hraða umferðar þó það sé væntanlega ekki markmið tillögunnar. En mætti kenna fólki hægri varúðarregluna.

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem hún flokkast sem viðhalds- eða öryggisverkefni. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til viðkomandi sviðs innan borgarinnar. Viðhalds- og öryggisverkefni eru ekki lengur hluti af lýðræðisverkefninu Hverfið mitt. Réttur farvegur fyrir slíkar hugmyndir eru á vefnum: https://abendingar.reykjavik.is/. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information