Auka notkun sundlaugarinnar í Breiðholtsskóla.

Auka notkun sundlaugarinnar í Breiðholtsskóla.

Hvað viltu láta gera? Auka notkun sundlaugarinnar í Breiðholtsskóla. Sem dæmi gefa íþróttafélögum eða einkaaðilum tækifæri til að leigja aðstöðuna fyrir minni sundnámskeið, samflot, ungbarnasund og annað slíkt. Hvers vegna viltu láta gera það?

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem ekki er um eiginlega nýframkvæmd að ræða, hugmyndin felur í sér verulegan rekstrarkostnað og sundlaug er á lóð og umráði Breiðholtsskóla. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedils-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-almennar-upplysingar-2020-2021. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Það væri gott að bæta við heitum potti þarna ef auka á notkun laugarinnar. Einnig fyrir krakkana sem nota laugina í skólasundi að geta hitað sig aðeins fyrir eða eftir sundkennslu.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information