Snjóbræðsla á gönguleið milli Borga og Spangar

Snjóbræðsla  á gönguleið milli Borga og Spangar

Hvað viltu láta gera? Skýrist með titlinum Hvers vegna viltu láta gera það? Gangbrautir þarna á milli eru efiðar í snjóatíð og margur freistast þá til að ganga á akbrautinni. Upphituð gangbraut myndi auka lífsgæði íbúa Eirborga sem eðli máls samkvæmt eiga mörg erindi í þjónustu í Spöng.

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Hugmyndin felur í sér verulegan rekstrarkostnað og fellur því ekki að reglum verkefnisins. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til viðkomandi sviðs innan borgarinnar. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedils-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-almennar-upplysingar-2020-2021. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

mætti setja snjóbræðslu víðar t d i göngustíg meðfram kirkjugarðinum upp i Húsahverfi og líka meðfram kirkjugarði hinum megin meðfram Langarima. Svo mætti bæta og setja bekki meðfram göngustígum vantar alls staðar bekki svo fólk geti sest niður og ruslafötur líka.. Mjög margt fólk farið að ganga reglulega og eins er stór hópur frá Borgum sem gengur flesta daga og gott að geta sest niður stundum.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information