Bætt aðgengi að Vatnsgeymi við Háteigsveg

Bætt aðgengi að Vatnsgeymi við Háteigsveg

Hvað viltu láta gera? Gera tröppur upp á Vatnsgeyminn þannig að hann nýtist sem útsýnisstaður. Hvers vegna viltu láta gera það? Mjög vinsælt er að fara upp á Vatnsgeyminn til að njóta útsýnis eða t.d um áramót til að sjá flugelda. Það var lengi einhverskonar stígur upp á hann með tröppum efst en síðast þegar gert var við geyminn þá var þetta sléttað út. Nú er þetta erfitt t.d í snjó. Það þyrfti eflaust að setja handrið meðfram þeirri hlið sem snýr að Háteigsvegi en hinar hliðarnar eru vinsælar sleðabrekkur. Einföld og ódýr aðgerð sem bætir miklu við svæðið.

Points

Gera tröppur með handriði upp þar sem þarna er góður útsýnisstaður og t.d. vinsælt er að vera þarna á gamlárskvöld að horfa á flugelda.

Vatnshóllinn er segulmagnaður og dregur börn og fullorðna út í leik og samveru. Fallegt svæði sem eykur lýðheilsu hverfabúa. Frá hólnum er útsýni yfir alla borgina. Þarna ætti að vera útsýnisskífa með nöfnum bygginga og fjalla. Það á að vera greiðfært öllum að komast upp á Vatnshólinn.

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem verkefni hugmyndarinnar er ekki innan verkefna / valdheimilda Reykjavíkurborgar eða ekki á borgarlandi. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information