Himnastiga í Öskjuhlíðina

Himnastiga í Öskjuhlíðina

Hvað viltu láta gera? Gera tröppur eins og í Kópavogi Hvers vegna viltu láta gera það? til heilsuræktar

Points

Allsekki!! Leyfum Öskjuhlíðinni að vera sú nátturulega hlíð sem hún er- aðgreina hvar má hjóla og hvar ganga, svo börn og fullornir geti áfram farið í ævintýraferðir um hlíðina. Ekki malbika meira- það á ekki að vera malbik í skógi- leyfið náttúrinni að halda sér.

Það er nú þegar löng og nokkuð brött brekka í stefnu milli Perlunnar og leikskólans við flugvöllinn. Auðvelt að nýta hana eins og himnastiga.

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem umrætt verkefni er nú þegar í ferli annars staðar innan borgarkerfisins og því ekki hægt að kjósa um það að svo stöddu. Sjá hlekk á verkefni hér: https://reykjavik.is/frettir/nyr-stigur-baetir-verulega-adgengi-ad-oskjuhlid. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information