Stækka íbúabyggð í norð-, norðvestur - Auglýsa lóðir

Stækka íbúabyggð í norð-, norðvestur - Auglýsa lóðir

Hvað viltu láta gera? www.m22.is - Undirskriftasöfnun er í gangi gegn breytingum á aðalskipulagi. Að nýta þetta friðsæla og fallega útivistarsvæði undir iðnaðarhverfi er léleg nýting á verðmætum útsýnislóðum, sólríkum suðurhlíðum eins og þær voru auglýstar á sínum tíma. Hvers vegna viltu láta gera það? Skuldbindingar borgarinnar gagnvart íbúum eru fólgnar í að viðhalda núverandi skipulagi. Þá er borgin skuldbundin íþróttafélaginu Fram um að hér sé nægilega stórt samfélag íbúa til að standa að baki öflugu íþrótta- og æskulýðsstarfi. Það er ótækt og í algjöru ósamræmi við umhverfið og náttúruna í nágrenninu að hafa þarna iðnaðarhverfi, fá svæði innan borgarmarkanna henta betur undir íbúabyggð en þessar sólsælu suðurhlíðar.

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Þín hugmynd var ekki metin tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem um er að ræða skipulagsskylt verkefni sem samræmist ekki reglum Hverfið mitt. Skipulagsferill hugmyndarinnar er of langur fyrir tímaramma Hverfið mitt. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Gríðarlega mikilvægt að tryggja íbúðabyggð á m22

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information