Fleiri tegundir af flokkunar gámum í spöng

Fleiri tegundir af flokkunar gámum í spöng

Hvað viltu láta gera? Vil fá flokkunar gáma fyrir gler og málma til viðbótar við plast og pappagáma í spöng og helst setja upp niðurgrafna gáma sem er mun snyrtilegra Hvers vegna viltu láta gera það? til hvatningar um flokkun á fleiri tegundum og minnka heimilissorp, frá gangur sorpgáma við Móaveg er alveg til fyrirmyndar og væri frábær hugmynd að hafa í spönginni

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Hluti hugmyndarinnar hefur nú þegar verið framkvæmdur og hinn hluti hugmyndarinnar er í ferli annars staðar í borgarkerfinu. Hugmyndinni þinni verður komið áfram sem ábendingu til viðkomandi sviðs innan borgarinnar. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Væri gott að hafa sem flesta gáma þar, kerta, ál o.fl.

Umgengnin um þessa gáma hefur verið með hætti sem kallar á að útfærsla þessa gámasvæðis verði endurskipulögð og hönnuð svo sómi og hagnýting sé af.

Það vantar gám fyrir málma í Spöngina. Ég vinn í Árbænum og fer með málmdósir þangað en mér finnst að ég ætti að geta losað mig við málminn í mínu heimahverfi.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information