Göngustígslýsingu fyrir neðan Staðahverfi

Göngustígslýsingu fyrir neðan Staðahverfi

Hvað viltu láta gera? Setja götulýsingu við göngustíginn meðfram sjónum fyrir neðan Staðahverfi. Hvers vegna viltu láta gera það? Vegna þess að það er mjög dimmt á þessum gangstíg þar sem það er lítil sem engin umhverfislýsing þarna. Stígurinn er mjög mikið notaður af gangandi, hlaupandi og hjólandi vegfarendum.

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Hugmyndin þín var metin tæk* af fagteymi sérfræðinga verkefnisins og verður ein af þeim hugmyndum sem stillt verður upp á fundi íbúaráðs Grafarvogs á mánudaginn næstkomandi þann 22. mars milli kl. 17-19 þar sem valdar verða 25 af þeim hugmyndum sem verða á kjörseðli hverfisins í kosningunni í haust. Hér er hlekkur á facebook event fundarins sem verður opinn og streymt beint: https://www.facebook.com/events/232474641944391. Í einhverjum tilfellum hafa hugmyndir verið sameinaðar þar sem þær hafa verið taldar mjög áþekkar annarri/öðrum hugmyndum og í nokkrum tilfellum höfum við gert litlar breytingar á hugmyndum til þess að þær falli betur að reglum verkefnisins.* Fundir íbúaráðanna þar sem valið verður hvaða hugmyndir fara á kjörseðla hverfanna næsta haust verða formlegir aukafundir þar sem allir geta tekið þátt. Við viljum eindregið hvetja þig til þess að taka þátt í fundinum í þínu hverfi og vekja athygli á honum og hugmynd þinni eins og þú hefur tækifæri til. Dagsetningar allra fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Þau rök sem ég hef séð á fésinu um að setja ekki lýsingu á þennan stíg finnst mér alveg rétt - hægt er að fara í gegnum hverfið ef fólk vill ganga þar sem lýsing er - en þarna er frábært að fara til að njóta þessa vera án lýsingar og sjá t.d. norðurljósin þegar þau láta sjá sig - ekki hægt að njóta þess þegar allt er upp ljómað.

Alls ekki, þarna fer maður ef maður vill flýja borgina og ljósmengunina. Ef eitthvað er má malbika þetta aftur... orðið svo lélegt malbikið að maður liggurvið dettur um það í myrkrinu 😁

Það er löngu kominn tími á að lýsa þennan stíg. Hann er stórhættulegur í myrkrinu þar sem ekki sést handaskil þarna yfir veturinn. Göngustígar eru lagðir fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur en ekki til að njóta myrkurs. Það er hægt að gera fyrir utan borgina. Öryggi vegfarenda ætti alltaf að vega mest og göngustígar í höfuðborginni eiga að vera upplýstir.

Tek undir þessa tillögu svo lengi sem ljósin væru það lág að þau myndu bara skína á stéttina - ekki háir staurar :)

Við höfum ljósmengun allt í kringum okkur. Þetta er einn af fáum stígum þar sem hægt er að njóta norðurljósana, tunglskynsins og stjarnanna í Borginni. Auk þess er Blikastaðakróin, svæðið á milli Geldinganes og Blikastaðanes skilgreint sem vendarsvæði með fjölbreyttu fugla og dýralífi sem vert er að vernda. Þetta er ein af perlum Borgarinnar sem vert er að vekja athyggli á.

Þetta er einn af fáum stígum í borginni þar sem hægt er að njóta myrkurs til að skoða norðurljós og stjörnur.

Alls ekki að setja lýsingu á þennan stíg , njótum umhverfisins / náttúrunnar án lýsingar þarna

Gott að njóta umhverfisins í myrkri stundum og leyfa náttúrunni að njóta sín. Það eru upplýstir stígar inní hverfinu sem hægt er þá að velja sér að ganga á ef fólk kýs að ganga á upplýstum stíg.

Ljósmengun

Alls ekki lýsingu á þennan stíg. Þarna er hægt að njóta norðurljósa og kyrrðar. Það er hægt að hlaupa eða labba upplýstan stíg fyrir ofan og inni í hverfinu. Hins vegar mætti laga þennan stíg, svo auðveldara sé að ganga eða hjóla hann.

Kæri hugmyndahöfundur Uppstilling kjörseðla fyrir kosningarnar í íbúalýðræðisverkefninu Hverfið mitt fór fram á opnum fundum íbúaráða Reykjavíkurborgar frá 22. mars til 20. maí sl. og liggur nú niðurstaða fyrir í öllum hverfum. Þín hugmynd var því miður ekki valin áfram og verður því ekki á kjörseðlinum að þessu sinni. Nánari upplýsingar um fyrirkomulagið má finna hér: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt Í fyrsta skipti var öllum boðin þátttaka í þessum lið ferilsins, þ.e. að velja hugmyndir á kjörseðilinn að yfirferðar- og samráðsferli loknu. Þátttakan í uppstillingunni fór fram úr björtustu vonum og ljóst að margar góðar hugmyndir verða á kjörseðlum allra hverfa Reykjavíkur í kosningunni í haust. Á www.hverfidmitt.is má sjá þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 30. september - 14. október næstkomandi. F.h. Hverfið mitt Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information