Göngustígur úr Þ-selum að nýja ÍR vellinum

Göngustígur úr Þ-selum að nýja ÍR vellinum

Hvað viltu láta gera? Láta leggja göngustíg úr Þ-selunum að nýja ÍR vellinum. Hvers vegna viltu láta gera það? Það er í dag göngustígur úr Þ-selunum milli Þverársels nr 12 og 14 sem endar í möl og villtum og óræktuðum gróðri. ÍR svæðið er komið með hlaupabraut og áhorfendapall en enn er ekki orðið göngufært úr hverfinu að svæðinu. Smá stígur frá göngustígnum milli nr 12 og 14 myndi vera hentug leið til að tengja saman hverfið við íþróttasvæðið.

Points

Sammála!

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Hugmyndin þín snýr að vinnu sem þegar er áformuð á næstu misserum og er þ.a.l. í öðru ferli. Hún er því ekki tæk í kosningu í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information