Leiksvæði/fjölskyldusvæði Húsahverfi

Leiksvæði/fjölskyldusvæði Húsahverfi

Hvað viltu láta gera? Að verði gert almennilegt svæði fyrir fjölskyldur og börn til að leika sér í húsahverfi á milli Grundarhús og Vallarhús. Með rólum, rennibraut, litlum kastala. Möguleg grill aðstaða fyrir fjölskyldur á sumrin. Hvers vegna viltu láta gera það? Því það er enginn almennileg aðstæða fyrir börn að leika sér örugg undir grunnskóla aldri í húsahverfi.

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Svæðið sem um ræðir er ekki á lóð Reykjavíkurborgar heldur er um húsfélagsmál að ræða. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Alveg sammála, væri frábært að nýta þetta svæði fyrir börn og fjölskyldur í hverfinu

Hverfið er að yngjast og það vantar alveg leikvöll fyrir yngstu börnin.

Þetta er hverfi sem er í mikilli endurnýjun og hefur verið skilið eftir í uppbyggingu aðstöðu fyrir krakka. Annarhver skóli á höfuðborgarsvæðinu er með sparkvelli eða skólahreystisbraut. Það hlýtur að vera hægt að henda í gott fjölskyldusvæði hér.

Frábært vannýtt svæði

Algjörlega sammála! Mjög miðlæg staðsetning sem myndi sinna mörgum börnum. Enda mikið um fjölskyldur með börn í þessu hverfi.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information