Hljóðmön við enda Sigtúns

Hljóðmön við enda Sigtúns

Hvað viltu láta gera? Bæta við hljóðmön við enda Sigtúns hjá Kringlumýrarbraut Hvers vegna viltu láta gera það? Umferð hefur aukist talsvert og af því stafar hávaði og mengun. Hljóðmönin myndi líka koma í veg fyrir óþarfa umferð bíla því margir keyra inn þessa götu og halda að þeir komist inn á Kringlumýrarbraut þaðan. Þegar þeim verður ljóst að þeir þurfi að snúa við þá keyra þeir með miklum hraða til baka.

Points

Endilega setja upp augljósa hindrun við enda Sigtúns. Gatan er hættuleg fólki sem þarf að þvera hana sem og ferfætlingum sem dæmi eru um ekið hafi veirð á þannig að dauðk hlaust af. Mengun óþarfa bílaumferðar. ásamt ásam brotum á lögum um hámarkshraða valda íbúum götunnar ama sem auðvelt er að ráða bót á með því að virkja þessa tillögu í framkvæmd.

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Skipulagsferill þessar hugmyndar væri of langur fyrir tímaramma verkefnisins eða hugmyndin samræmist ekki gildandi skipulagi á svæðinu. Hugmyndir er falla innan verkefna og valdheimilda Reykjavíkurborgar verður komið áfram sem ábendingu til viðeigandi deilda innan stjórnsýslu borgarinnar. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information