Göngubrú yfir Sæbraut

Göngubrú yfir Sæbraut

Hvað viltu láta gera? Setja göngubrú eða undirgöng á gatnamótum Dugguvogs/Súðarvogs og Sæbrautar Hvers vegna viltu láta gera það? Þetta er mengunarhorn og einnig mjög hættulegt þar sem börn eru þarna á ferðinni. Hjólreiðafólk fer þarna mikið og umferð myndi ganga hraðar á Sæbrautinni.

Points

Það mætti klárlega íhuga þetta á fleiri stöðum á Sæbrautinni líka! Mikill hraðakstur og það hafa orðið banaslys á gangandi vegfarendum/hjólandi fólki. . Eins og Laugarnestanginn er heillandi göngu og útivistarsvæði þá er maður logandi hræddur við að fara yfir Sæbrautina og sérstaklega með lítil börn 🙄

Ekki seinna en núna.

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Um er að ræða þjóðveg í þéttbýli og breytingar því á forræði Vegagerðarinnar sem er veghaldari þjóðvega. Vegagerðin og Reykjavíkurborg eiga farsælt samstarf um úrbætur á þjóðvegum og verður tillögunni komið áfram til Vegagerðarinnar og skrifstofu samgöngustjóra og borgarhönnunar. Öryggisaðgerðir á umræddu svæði eru einnig í vinnslu annars staðar í borgarkerfinu. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information