Hringbraut í stokk

Hringbraut í stokk

Hvað viltu láta gera? Setja Hringbraut í stokk frá Suðurgötu til Ánanausta. Hvers vegna viltu láta gera það? Nausynleg aðgerð til að auka öryggi íbúa, bæta loftgæði, skapa grundvöll fyrir græn svæði og leiksvæði í hjarta Vesturbæjarins.

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem hún rúmast ekki innan fjárhagsramma verkefnisins. Einnig er um að ræða þjóðveg í þéttbýli og breytingar því á forræði Vegagerðarinnar sem er veghaldari þjóðvega. Vegagerðin og Reykjavíkurborg eiga farsælt samstarf um úrbætur á þjóðvegum og verður tillögunni komið áfram til Vegagerðarinnar og skrifstofu samgöngustjóra og borgarhönnunar. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Tengir mörg hverfi Reykjavikur . Miðbæ, Vesturbæ, Skerjafjörð, Seltjarnarnes, Öskjuhlíð, Hlíðar og Kópavog. Stokkur frá Njarðargötu til Hringbrautar opnar upp Reykajvík í allar áttir.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information