Hjólastígur meðfram Breiðholtsbraut

Hjólastígur meðfram Breiðholtsbraut

Hvað viltu láta gera? Göngu og hjólastíg frá Skógarseli að Jaðarseli. Hann lægi meðfram Miðskógum og Seljabraut og færi yfir /undir Seljaskóga Hvers vegna viltu láta gera það? Hættulegt er að hjóla á Breiðholtsbraut. Það eru mjög litlar beinar tengingar milli Mjóddar og efri hluta Breiðholts fyrir gangandi og hjólandi Búið er að brúa Breiðholtsbraut milli neðra-Breiðholts og Seljahverfis þeas norður-suður tenging en vantar austur-vestur tengingu. Hægt væri að áfangaskipta verkefninu. Það liggur td á að fá góða hjóla -og göngustíg meðfram Seljabraut. Mjög gott pláss er til fyrir 8m breiðan stíg í jaðri trjágróðursins. Ég sé svo fyrir mér göng undir Seljaskóga í framhaldinu. Þarna væri hægt að fá hindrunarlausa 1 km leið

Points

Það eru betri norður-suður tengingar í Breiðholti en austur-vestur tengingar. Margir eru á ferð upp i Seljahverfið og Fellahverfið frá neðri byggðum. Eg legg til að hjólabrautin verði lögð frá Álfabakka að Jaðarseli með möguleika á framhaldi að Suðurlandsvegi. Þvergóturnar eru Skógarsel, Seljaskógar og Jaðarsel. Þetta yrði ca 2km löng leið

Er að senda inn hugmynd í betrahvetfi.is um hjólabraut meðfram Breiðholtsbraut frá Álfabakka að Jafnaseli

Klárlega , þarna er reyndar 30km umferðargata sem ég nota frekar en gangstíginn en einnig er mikil traffik gangandi á stígnum , Hér myndi hjólastigur meðfram Seljabraut nýtast vel.

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem uppbygging hjólreiðastíga er í öðru ferli innan borgarkerfisins og því ekki hægt að kjósa um það að svo stöddu. Uppbygging hjólreiðastíga er í undirbúningi og verður framkvæmd í áföngum á næstu árum. Hugmyndinni verður vísað sem ábendingu inn í þá vinnu hjá samgöngudeild umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information