Skautasvell og matarvagnar á uppfyllingunni á tanganum

Skautasvell og matarvagnar á uppfyllingunni á tanganum

Hvað viltu láta gera? Hætta við að byggja hús Faxaflóahafnar á uppfyllingunni á Laugarnestanga en í staðinn setja þar upp stórt, óyfirbyggt og kælt skautasvell. Yfir hásumarið væri því svo lokað en opnaður í staðinn matarvagnamarkaður. Hvers vegna viltu láta gera það? Þetta er frábært útivistarsvæði með frábæru útsýni og fallegt í öllum veðrum. Þetta er langt frá byggð, þannig að læti í glöðum krökkum á öllum aldri ættu ekki að pirra neinn "fúlan á móti". Það er algjör synd að byggja þarna og eyðilegga þar með útsýni yfir sundin frá Laugarnestanganum. Reffen í Kaupmannahöfn er gott dæmi um vel heppnaðan matarmarkað við sjóinn með frábæru andrými, þar sem fólk er tilbúið til að ganga töluverða vegalengd til að komast að.

Points

Hér er önnur hugmynd um verndun uppfyllingarinnar sem útivistarsvæði: https://hverfidmitt-2020-2021.betrireykjavik.is/post/38922

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem verkefni hugmyndarinnar er ekki innan verkefna / valdheimilda Reykjavíkurborgar eða ekki á borgarlandi. Hugmynd verður komið áfram sem ábendingu til Faxaflóahafna. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information