Byggja ofan á hringtorgið á Laugalæk - Laugarnesveg

Byggja ofan á hringtorgið á Laugalæk - Laugarnesveg

Hvað viltu láta gera? Ég vil láta setja upphækkun, blómaker eða eitthvað ofan á hringtorgið við Laugalæk - Laugarnesveg. Hvers vegna viltu láta gera það? Hringtorgið er það sem sumir kalla geirvörtu hringtorg. Það er lítið og óáberandi og mjög auðvelt að svindla á því með því að keyra beint yfir það. Það er ítrekað mjög tæpt að það verði árekstrar þarna þar sem sumir virðast bara alls ekki taka eftir því að þarna sé hringtorg og keyra þarna um eins og hringtorgið sé ekki þarna.

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Þín hugmynd var ekki metin tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem hugmyndin er ekki gerleg eða framkvæmanleg á umræddu svæði. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information