Endurnýjun í Öskjuhlíð

Endurnýjun í Öskjuhlíð

Hvað viltu láta gera? Undanfarin ár hefur svæðið umhverfis gosbrunninn austan við Perluna farið í algera órækt. Upplýsingaspjöld hverfa undir hávaxinn gróður á sumrin og hlaðnir veggir og gólf fara smám saman "í eyði". Þótt "Litli Geysir" þarna verði úr sögunni ætti að halda við svæðinu og snyrta til. Orkuveitu Reykjavíkur og Reykjavíkurborg verið bent á óræktina og þau hvött til að fegra staðinn. Hvers vegna viltu láta gera það? Það væri gaman ef unnt yrði að endurlífga svæðið í kring í stað þess að láta það drabbast niður. Það mætti finna því einhvern skemmtilegan tilgang þótt sjálfur brunnurinn yrði úr sögunni. Það hefur á sínum tíma verið kostað miklu til við að hlaða steingólfið og veggina í kring.

Points

Leiðrétting: Höfundur tillögunnar er Jóhanna Jóhannesdóttir

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Svæðið sem um ræðir er í uppbyggingu og/eða breytingar fyrirhugaðar á komandi árum og því ekki tímabært að kjósa um að svo stöddu. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu inn í það ferli. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information