Heildrænt skipulag á grænu svæði við Vesturbæjarlaug

Heildrænt skipulag á grænu svæði við Vesturbæjarlaug

Hvað viltu láta gera? Bæta við bekkjum, borðum og ruslatunnum, einnig mætti bæta við leiktækjum fyrir allan aldur, borðtennisborðum, strandblakvöllum, æfingatæki fyrir heldra fólk og ærslabelg fyrir þau yngri. Hvers vegna viltu láta gera það? Það vantar algerlega nýtingu á þessu frábæra svæði, þar er ekkert hægt að setjast og engar ruslafötur. Gerum þetta góða græna svæði að perlu og piknik svæði Vesturbæjarins!

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Hugmynd þín var metin tæk* af fagteymi sérfræðinga verkefnisins. Þær 5 hugmyndir sem fengu flest like í hverju hverfi, af þeim sem eru tækar, fara sjálfkrafa á kjörseðlana. Þín hugmynd var sameinuð við eina af efstu fimm hugmyndunum og er því sjálfkrafa komin á kjörseðilinn í þínu hverfi. Þín hugmynd var sameinuð við hugmynd sem heitir "Lóðin við Sundlaug Vesturbæjar fyrir alla fjölskylduna" og fer áfram sem undirhugmynd á þeirri hugmynd. Hinum tæku hugmyndunum verður stillt upp á fundi íbúaráðs Vesturbæjar á þriðjudaginn næstkomandi þann 30. mars milli kl. 17-19 þar sem valdar verða 25 af þeim hugmyndum sem verða á kjörseðli hverfisins í kosningunni í haust. Hér er hlekkur á facebook event fundarins sem verður opinn og streymt beint: https://www.facebook.com/events/446160169797749/. Fundir íbúaráðanna þar sem valið verður hvaða hugmyndir fara á kjörseðla hverfanna næsta haust verða formlegir aukafundir þar sem allir geta tekið þátt. Við viljum eindregið hvetja þig til þess að taka þátt í fundinum í þínu hverfi og vekja athygli á honum og hugmynd þinni eins og þú hefur tækifæri til. Dagsetningar allra fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Grænsvæði er okkur nauðsynleg en þarf ekki endilega að fylla þau af dóti

Frábært að fá útvistarsvæði með borðum, bekkjum . Gott afþreyingarsvæði eftir sund.

FRÁBÆRT! OKKUR VANTAR FLEIRI GRÆN SVÆÐI Í BORGINNI

Jájájá. Frábær hugmynd. Græn svæði laða að mannlíf. Mætti gera þetta góða útisvæði enn betra

Í vor eða einhvern tíma var auglýstur matarmarkaður á þessu svæði (matur íbúa í bæjarhlutanum sem eiga sér aðrar hefðir en gamalla Íslendinga) þá kom ég í fyrsta sinn á þennan stað. Þarna þarf að bæta aðgengi og setja upp sitthvað sem trekkir að. Bílastæðinu við Hofsvallagötuna mætti alveg fórna fyrir það. Það er að verða til svo fínn kjarni þarna en þyrfti að skipuleggja ögn betur og opna!

Kæri hugmyndahöfundur Uppstilling kjörseðla hverfa Reykjavíkur fyrir kosningarnar í íbúalýðræðisverkefninu Hverfið mitt sem fram munu fara næsta haust fór fram á opnum fundum íbúaráða Reykjavíkurborgar frá 22. mars til 20. maí sl. Þín hugmynd var sameinuð annarri hugmynd sem verður á kjörseðlinum í hverfinu í kosningum næsta haust. Hugmyndin þín lifir áfram í sameinuðu hugmyndinni en á síðu Betri Reykjavíkur fær hugmyndin stöðuna “Hafnað”. Í fyrsta skipti var öllum boðin þátttaka í þessum lið ferilsins, þ.e. að velja hugmyndir á kjörseðilinn að yfirferðar- og samráðsferli loknu. Þátttakan í uppstillingunni fór fram úr björtustu vonum og ljóst að margar góðar hugmyndir verða á kjörseðlum allra hverfa Reykjavíkur í kosningunni í haust. Á www.hverfidmitt.is má sjá þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 30. september - 14. október næstkomandi. Til þess að auka líkurnar á því að hugmyndin verði kosin til framkvæmda sumarið 2022 getur þú kynnt hana fyrir nágrönnum þínum og hvatt þau til þess að taka þátt í kosningunni í haust. Við sendum þér póst og minnum þig á þegar að því kemur. F.h. Hverfið mitt Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information