Grænt svæði og útivist á Laugarnestanga

Grænt svæði og útivist á Laugarnestanga

Hvað viltu láta gera? Vernda umhverfi Laugarnestanga þannig að landfyllingin og ströndin að Skarfakletti verði grænt svæði en ekki atvinnusvæði. Gera smá aðstöðu til útivistar með sturtu fyrir sjóböð, heita laug. Friða útsýnið til Viðeyjar og friða ströndina gegn fleiri landfyllingum og öðrum mannvirkjum. Hvers vegna viltu láta gera það? Laugarnes er ein af útivistarperlum Reykjavíkur. Hér er eina náttúrumyndaða fjaran sem eftir er á norðurströnd Reykjavíkur frá Örfirisey að Grafarvogi með einstakt útsýni að Viðey og til Esjunnar. Græna svæðið hefur verið skorið í burtu smám saman í gegnum árin með gatnagerð, íbúðarhúsum, landfyllingum og nú stendur til að setja skólpstöð og jafnvel skrifstofur á ströndina. Nýtt aðalskipulag Reykjavíkur leggur til að ströndin frá nýju landfyllingunni að Skarfakletti verði atvinnusvæði... en það væri miklu verðmætara að hafa þetta sem grænt svæði :)

Points

Absalút!

https://hverfidmitt-2020-2021.betrireykjavik.is/post/38684

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem verkefni hugmyndarinnar er ekki á borgarlandi. Hluti hugmyndarinnar hefur verið sameinaður við aðra hugmynd sem heitir "Sjósundsaðstaða á Laugarnestanga" og hluti hugmyndar fer áfram sem ábending til Skipulagsfulltrúa Reykjavíkurborgar og Faxaflóahafna. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information