Minni grassláttur

Minni grassláttur

Hvað viltu láta gera? Sláum sjaldnar graslendi í eigu borgarinnar Hvers vegna viltu láta gera það? Með minni grasslætti er hægt að draga úr ofnæmisvaldandi arfa, auka fjölbreytni í vistkerfinu og auðvitað lækka kostnað. Þetta er eiginlega win-win-win. Mögulega mætti einnig setja íslenskan gróður á fleiri staði í stað þessa einlita grasflæmis sem ber alls staðar við augu.

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem hún flokkast sem viðhalds- eða öryggisverkefni. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til viðkomandi sviðs innan borgarinnar. Viðhalds- og öryggisverkefni eru ekki lengur hluti af lýðræðisverkefninu Hverfið mitt. Réttur farvegur fyrir slíkar hugmyndir eru á vefnum: https://abendingar.reykjavik.is/. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Hægt að draga úr ofnæmisvaldandi arfa

Sjaldnar góða lyktin af nýslegnu grasi

Lægri kostnaður fyrir borgina

Aukin fjölbreytni í vistkerfinu

Skipulögð órækt sem sinnt er um getur verið falleg, en óræktin sem kemur upp á umferðareyjum, hringtorgum og í öðru graslendi innan borgarmarkanna er alla jafna hvorki til prýði né til marks um líffræðilega fjölbreytni. Spánarkerfill, njóli og netlur eiga það til að yfirtaka það graslendi sem ekki er sinnt um og þá er til lítils unnið.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information