Upphitaðan gervigrasvöll á Klambratúni

Upphitaðan gervigrasvöll á Klambratúni

Hvað viltu láta gera? Koma fyrir örðuvísi gervigrasvelli í stað þess gamla. Völlurinn þarf að vera breiðari, upphitaður og hafa lýsingu svo það náist betri nýting á honum. Hvers vegna viltu láta gera það? Við erum nokkrir sem langar að spila fótbolta á veturnar en það er einfaldlega ekki hægt á núverandi velli á Klambratúni. Takkaskórnir ná ekki gripi í frostinu og svo á maður til að detta við að sækja boltann þegar hann fer útaf. Það væri hægt að gera völlinn breiðari og/eða setja ramma eins á KSÍ gervigrasvöllunum sem eru í flestum skólum til að minnka líkurnar á að boltin fari útaf. Svo er líka skemmtilegra að fara upp kantinn. Einnig vantar lýsingu svo það sé hægt að spila á kvöldin eftir vinnu. Annars er stærðin á mörkunum mjög hentug og góð staðsetning á vellinum. Hreyfing er mikilvæg og allir ættu að eiga færi á að spila léttan fótbolta allan ársins hring.

Points

Öll hreyfing góð, drífa í þessu strax!

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Hugmyndin felur í sér verulegan rekstrarkostnað og fellur því ekki að reglum verkefnisins. Hugmyndir er falla innan verkefna og valdheimilda Reykjavíkurborgar verður komið áfram sem ábendingu til viðeigandi deilda innan stjórnsýslu borgarinnar. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedils-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-almennar-upplysingar-2020-2021. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information