Geymslustæði/útskot fyrir raflaupahjól

Geymslustæði/útskot fyrir raflaupahjól

Hvað viltu láta gera? Rafhlaupahjól hafa öðlast miklar vinsældir hér á landi og fylgja þeim margir kostir, enda ódýr í rekstri, auðveld í notkun og vistvænn og snöggur ferðamáti til að komast vegar síns í fallegu borginni okkar. Rafhlaupahjól verða eflaust í notkun nokkuð áfram, en þeim hefur fylgt sá vandi að þau hjól sem standa fólki til boða að taka á leigu standa á víð og dreif um götur og gangstéttir. Afleiðingar þess eru að snjómoksturstæki geta ekki rutt gangstéttir öðruvísi en að færa öll hjól úr vegi, sem er gríðarleg tímasóun og vannýting á tíma þess sem ryður veginn, og aðgengi fólks í hjólastólum er heft til muna. Það er auðvelt að sjá að þetta er ekki góð þróun á annars jákvæðu máli og væri hægt að minnka þennan vanda með því að setja hellulögð/malbikuð útskot þar sem möguleiki er á nálægt biðskýlum fyrir strætisvagna og svo þar sem hægt er á gangstéttum sem hægt væri að merkja svo með skiltum og stöndum til að læsa hjólin sín við. Það gæti leyst þennan vanda og ýtt undir þessa grænu þróun sem myndi minnka álag á bílaumferð og minnka útblástur í Reykjavík. Hvers vegna viltu láta gera það?

Points

Halda áfram eins og byrjað er á- þ.e setja geymslustæði við hverja strætisvagnastöð sem og við skóla

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Hugmyndin þín var metin tæk* af fagteymi sérfræðinga verkefnisins og verður ein af þeim hugmyndum sem stillt verður upp á fundi íbúaráðs Miðborgar og Hlíða á fimmtudaginn næstkomandi þann 20. maí milli kl. 17-19 þar sem valdar verða 20 af þeim hugmyndum sem verða á kjörseðli hverfisins í kosningunni í haust. Hér er hlekkur á facebook event fundarins sem verður opinn og streymt beint: https://www.facebook.com/events/950529515775273/. Í einhverjum tilfellum hafa hugmyndir verið sameinaðar þar sem þær hafa verið taldar mjög áþekkar annarri/öðrum hugmyndum og í nokkrum tilfellum höfum við gert litlar breytingar á hugmyndum til þess að þær falli betur að reglum verkefnisins.* Fundir íbúaráðanna þar sem valið verður hvaða hugmyndir fara á kjörseðla hverfanna næsta haust verða formlegir aukafundir þar sem allir geta tekið þátt. Við viljum eindregið hvetja þig til þess að taka þátt í fundinum í þínu hverfi og vekja athygli á honum og hugmynd þinni eins og þú hefur tækifæri til. Dagsetningar allra fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Kæri hugmyndahöfundur Uppstilling kjörseðla hverfa Reykjavíkur fyrir kosningarnar í íbúalýðræðisverkefninu Hverfið mitt fór fram á opnum fundum íbúaráða Reykjavíkurborgar frá 22. mars til 20. maí sl. Þín hugmynd var sameinuð annarri hugmynd sem var valin og verður þannig á kjörseðlinum í hverfinu í kosningum næsta haust. Hugmyndin þín lifir áfram í sameinuðu hugmyndinni en á síðu Betri Reykjavíkur fær hugmyndin stöðuna “Hafnað”. Í fyrsta skipti var öllum boðin þátttaka í þessum lið ferlisins, þ.e. að velja hugmyndir á kjörseðilinn að yfirferðar- og samráðsferli loknu. Þátttakan í uppstillingunni fór fram úr björtustu vonum og ljóst að margar góðar hugmyndir verða á kjörseðlum allra hverfa Reykjavíkur í kosningunni í haust. Á www.hverfidmitt.is má sjá þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 30. september - 14. október næstkomandi. Til þess að auka líkurnar á því að hugmyndin verði kosin til framkvæmda sumarið 2022 getur þú kynnt hana fyrir nágrönnum þínum og hvatt þau til þess að taka þátt í kosningunni í haust. Við sendum þér póst og minnum þig á þegar að því kemur. F.h. Hverfið mitt Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information