Bann við akandi umferð

Bann við akandi umferð

Hvað viltu láta gera? Milli tjaldsvæðisins í Laugardal og syðri húsanna við Laugarásveg er þröngur göngustígur, oftast lagður trjákurli. Gegnum þennan göngustíg aka oft hjólandi vegfarendur, jafnvel á raf- eða vélknúnum farartækjum og í mörgum tilvikum gefa þau ekki frá sér viðvörunarhljóðmerki. Vill láta banna þennan akstur um þennan göngustíg og vísa þessum farartækjum á breiðan göngustíg sunnan tjaldsvæðisins. Mætti gera það með örvamerkjum með mynd af hjóli. Hvers vegna viltu láta gera það? Göngufólk er í stórfelldri hættu þarna, erfitt sums staðar að víkja til hliðar, sérstaklega á sumrin, þegar þrengir mjög að stígnum vegna hávaxins illgresis og fólki er mjög brugðið þegar farartæki á miklum hraða er ekið um þennan stíg, en sá sem þetta ritar hefur oft orðið þess var. Þarna eru einnig stundum börn að leik að klifra í gömlum trjám sem þarna eru og þeim er einnig hætta búin af þessum faratækjum.

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem hún flokkast sem viðhalds- eða öryggisverkefni. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til viðkomandi sviðs innan borgarinnar. Viðhalds- og öryggisverkefni eru ekki lengur hluti af lýðræðisverkefninu Hverfið mitt. Réttur farvegur fyrir slíkar hugmyndir eru á vefnum: https://abendingar.reykjavik.is/. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information