Sleðabrekka í Hlíðum sunnan Miklubrautar

Sleðabrekka í Hlíðum sunnan Miklubrautar

Hvað viltu láta gera? Útbúa sleðabrekku í þeim hluta Hlíðanna sem liggur sunnan Miklubrautar, t.d. í hallanum norður af Veðurstofuhæð, austan skátaheimilisins og ofan MH. Væntanlega þyrfti að auka hallann með jarðvegi (?) og um leið mætti ryðja burt lúpínu og koma fyrir lynggróðri eða öðrum gróðri til að prýða staðinn. Hvers vegna viltu láta gera það? Vegna þess að nú er búið að leggja nýjan göngu- og hjólreiðastíg þvert yfir brekkuna ofan við húsin við Hörgshlíð, sem börnin í hverfinu notuðu sem sleðabrekku.

Points

Ef ekki þar þá í Öskjuhlíð

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem verkefni hugmyndarinnar er ekki innan verkefna / valdheimilda Reykjavíkurborgar eða ekki á borgarlandi. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information