Göngutenging frá Birkimel að húsi íslenskra fræða

Göngutenging frá Birkimel að húsi íslenskra fræða

Hvað viltu láta gera? Engin almennileg göngutenging er á milli Birkimels og að Hótel Sögu og hins nýja húss íslenskra fræða. Þar vantar tilfinnanlega gangstétt með fram lóð bensínstöðvarinnar og eins hinum megin þar sem gangandi vegfarendur verða að ganga á grasbala eða á götunni. Þarna er líka mikið notað Pósthús. Núverandi fyrirkomulag er aðeins fyrir akandi vegfarendur og hættulegt gangandi vegfarendum. Hvers vegna viltu láta gera það? Til að auðvelda aðgengi og bæta öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda. Birkimelur er ein fjölfarnasta gata Vesturbæjar en tengingu vantar frá honum yfir í þjónustu mikilvægra stofnana við Suðurgötu.

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem hún flokkast sem viðhalds- eða öryggisverkefni. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til viðkomandi sviðs innan borgarinnar. Viðhalds- og öryggisverkefni eru ekki lengur hluti af lýðræðisverkefninu Hverfið mitt. Réttur farvegur fyrir slíkar hugmyndir eru á vefnum: https://abendingar.reykjavik.is/. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Bætt öryggi gangandi vegfarenda.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information