Undirgöng í Örfirisey

Undirgöng í Örfirisey

Hvað viltu láta gera? Gera göng fyrir gangandi og hjólandi, með stórum steyptum rörum eða ræsisrörum ca. 2,5 m í þvermál undir olíubryggjuna í Örfirisey svo hægt verði að tengja göngustígana sem eru sitt hvorum megin við olíutankana nú en ná ekki saman. Það er í raun engin tenging milli norður- og suðurhluta Örfiriseyjar vegna tankanna og virðist lítil von um að .það breytist í bráð. En það mætti stórbæta útivistar og göngu og hjólamöguleika með þessu litla mannsvirki. Fá olíufélögin með í málið, þau eiga ekki að sitja ein að þessum náttúruauðlindum.. Hvers vegna viltu láta gera það? Sjá að ofan

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem verkefni hugmyndarinnar er ekki innan verkefna eða valdheimilda Reykjavíkurborgar eða ekki á borgarlandi. Hugmyndin fer áfram sem ábending til Faxaflóahafna. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information