Bætt aðgengi gangandi og hjólandi að Laugardalshöll

Bætt aðgengi gangandi og hjólandi að Laugardalshöll

Hvað viltu láta gera? Setja upp hraðahindrun með gangbraut inn á stéttina við innganginn í Laugardalshöllina. Tengja þannig gangstígana í kringum höllina alla leið að dyrum Laugardalshallarinnar. Bæta aðgengi barna, hjólandi og gangandi að höllinni. Hvers vegna viltu láta gera það? Skipulagið sem er núna í kringum höllina er bara hugsað útfrá bílaumferð. Á hverjum degi mæta hundruðir barna til æfinga í höllinni, frjálsíþróttaæfingar, dansæfingar, körfubolta, fótbolta og fleira. Sem betur fer kemur stór hluti barnanna sér sjálf á æfingar gangandi, hjólandi eða með strætó en samt er engin tenging af göngustígum í kring inn á stéttina við inngang hallarinnar. Þegar þau skjótast yfir veginn inn á bílaplanið er ekki einu sinni lækkun á gangstéttarkantinum til að auðvelda þeim að hjóla inn á stéttina heldur þurfa þau yngstu að fara af hjólunum á veginum/bílaplaninu til að lyfta hjólinu upp á stéttina.

Points

Mikilvægt öryggis og aðgengismál! Sem betur fer hefur mikið breyst á stuttum tíma. Þessi vondi minnisvarði um hönnun, þar sem ekki er gert ráð fyrir umferð hjólandi barna við íþróttamannvirki, ætti ekki að fá að standa óbreyttur öllu lengur!

Það er með eindæmum sérkennilegt aðgengið að innganginum fyrir iðkendur í Laugardalshöllinni. Ekki samfelldar gangstéttir til að ganga/hjóla og umferð illa skipulögð. Ætti að leggja mun meiri áherslu á gott aðgengi gangandi/hjólandi vegfarend í kringum í þróttamannvirki.

Mér hefur einmitt þótt svæðið í kringum Laugardalshöll ekki gera ráð fyrir hjólandi gestum. Einu sinni (reyndar fyrir örfáum árum síðan) kom ég hjólandi til að skrá mig í maraþonið og fann ekki hjólastæði!

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem hún flokkast sem viðhalds- eða öryggisverkefni. Einnig er umrætt verkefni í ferli annars staðar í borgarkerfinu. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til viðkomandi sviðs innan borgarinnar. Viðhalds- og öryggisverkefni eru ekki lengur hluti af lýðræðisverkefninu Hverfið mitt. Réttur farvegur fyrir slíkar hugmyndir eru á vefnum: https://abendingar.reykjavik.is/. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information