Lagfæra göngustíga í Stekkjunum

Lagfæra göngustíga í Stekkjunum

Hvað viltu láta gera? Laga hellulagða göngustíga í Stekkjunum. Og loka aðgengi bíla að þessum göngustígum. Hvers vegna viltu láta gera það? Margir göngustígar í Stekkjunum eru hellulagðir og eru hellurnar komnar vel uppúr svo það myndar "helluþúfur" út um allt og því erfitt fyrir hjólastóla, kerrur og vagna að komast um. Einnig mætti setja blómapotta eða einhverskonar lokanir á endum á þessum göngustígum þar sem af einhverri ástæðu er oft keyrt á þeim og eyðilagt bæði grasið og göngustíginn.

Points

Mjög sammála þessu

Alveg sammála. Þessi stígur er á köflum stórhættulegur og löngu úr sér genginn.

Mjög mikilvægt að laga þetta sem fyrst.

Hluti þessa göngustígs er beinlínis slysahætta hellurnar eru orðnar svo illa farnar. Ekki skánaði ástandið við ljósastauraskipti nú í vetur

Löngu tímabært. Erfitt fyrir börn í hverfinu að hjóla á stígnum eins og þeir eru núna.

Mjög sammála, þetta er löngu orðið tímabært.

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem hún flokkast sem viðhalds- eða öryggisverkefni. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til viðkomandi sviðs innan borgarinnar. Viðhalds- og öryggisverkefni eru ekki lengur hluti af lýðræðisverkefninu Hverfið mitt. Réttur farvegur fyrir slíkar hugmyndir eru á vefnum: https://abendingar.reykjavik.is/. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information