Göngustígur milli Laugateigs og Hofteigs

Göngustígur milli Laugateigs og Hofteigs

Hvað viltu láta gera? Göngustíg milli Laugateigs og Hofteigs. Það er enginn stígur þarna á milli en gangandi vegfarendur ganga samt þarna og svæðið þarna á milli er iðulega eins og forarpyttur. Hvers vegna viltu láta gera það? Þetta er subbulegt og erfitt að komast þarna á milli sérstaklega á vorin og haustin

Points

Veit ekki hvernig stendur með lóðamörk þarna og hver það er (borgin?) sem gæti útfært eitthvað þarna sem þolir betur fóta- og hjólaumferð. Burt séð frá því þá er þetta vinsæl leið, sérstaklega hjá börnunum í götunum í kring og þess vega treðst grasið á þessum litlum spotta svona ægilega mikið niður. Komin margra ára hverfishefð fyrir þessum spotta og hann á því einhversskonar styrkingu eða "vernd" skilið.

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem hún flokkast sem viðhalds- eða öryggisverkefni. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til viðkomandi sviðs innan borgarinnar. Viðhalds- og öryggisverkefni eru ekki lengur hluti af lýðræðisverkefninu Hverfið mitt. Réttur farvegur fyrir slíkar hugmyndir eru á vefnum: https://abendingar.reykjavik.is/. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Ég bý í húsinu við þennan stíg og geng hann nánast á hverjum degi til vinnu. Þegar blautt er í veðri verður að taka á sig krók til að fá ekki eðju á sig upp að hnjám. Hvað mig varðar verður lítill vandi að semja um lóðamörk ef nauðsyn krefur og af þessu verður.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information