Skýli og bekki þar sem eru biðstöðvar Strætó

Skýli og bekki þar sem eru biðstöðvar Strætó

Hvað viltu láta gera? Vil fá bekki og almennileg skýli þar sem fólk bíður eftir Strætó . Svo má lika bæta i Spönginni . Ekki nóg að vera bara með eitt skýli með pláss fyrir 2 sitjandi ..Oft margir að bíða . Þarf fleiri bekki og annað skýli þetta er nú einu sinni aðalskiptistöðin þarna fyrir alla vagna. Svo vantar tilfinnanlega skýli við Strandveginn á móts við Bæjarflöt , Gylfaflöt.. Þar er t d Miðgarður þjónustumiðstöðin þar sem margir þurfa að komast og mörg fyrirtæki . Bara staur núna . Hvers vegna viltu láta gera það? Vegna þess að það myndi bæta aðgengi og fleiri myndu taka vagnana

Points

Er í öðru ferli Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem verkefnið sem um ræðir í hugmyndinni er í öðru ferli innan borgarkerfisins og því ekki hægt að kjósa um það að svo stöddu. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til Strætó. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information