Gönguljós yfir Brúnaveg við Skúbb

Gönguljós yfir Brúnaveg við Skúbb

Hvað viltu láta gera? Setja gönguljós yfir Brúnaveg við gatnamót Laugarásvegar og Brúnavegar þar sem gangbrautin við ísbúðina Skúbb er. Hvers vegna viltu láta gera það? Það er gríðarlega mikil umferð um Brúnaveginn allan daginn og mikið af börnum á ferð sem labba daglega í skóla eða íþróttir. Strætisvagnar keyra upp og niður götuna oft á dag og keyra oft mjög hratt. Hraðahindrun sem er þarna gerir lítið gagn. Sonur minn hefur lent í því að standa á eyjunni milli akgreinanna og Strætó stöðvaði ekki fyrir honum þótt hann stæði á miðri götu (á eyjunni). Einnig varð konan mín næstum fyrir bíl þarna á leiðinni yfir götuna þegar bíll ók of hratt niður brekkuna.

Points

Slysahætta án ljósa

Bý a brúnavegi og börnin mín ganga oft þarna yfir. Þau hafa því miður oftar en einu sinni lent i því að bílar stoppa ekki fyrir þeim og keyra hratt framhjá. Nauðsynlegt að koma þessu í gegn. Umferð er töluverð og mikið af börnum sem eru að fara þarna yfir á hverjum degi.

Ég bý á Brúanvegi og verð oft á dag vitni af hraðakstri niður Brúnaveginn, þetta er stórhættuleg gangbraut og gönguljós alveg nauðsynleg.

Ég bjó við þessa götu og það gerðist nánast á hverjum morgni að bílar stoppuðu ekki fyrir börnum sem biðu við gangbrautina og hraðinn á bílum niður brekkuna er oft langt yfir hámarkshraða.

Ég bý við Brúnaveg og það er óhugnanlegt að sjá hversu hratt bílar bruna niður götuna og þar á meðal strætisvagnar.

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem hún flokkast sem viðhalds- eða öryggisverkefni. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til viðkomandi sviðs innan borgarinnar. Viðhalds- og öryggisverkefni eru ekki lengur hluti af lýðræðisverkefninu Hverfið mitt. Réttur farvegur fyrir slíkar hugmyndir eru á vefnum: https://abendingar.reykjavik.is/. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information