Áfengislaus dansstaður. án kynsslóðabils.

Áfengislaus dansstaður. án kynsslóðabils.

Hvað viltu láta gera? Koma á fót dansstað þar sem væri ekkert kynslóðabil og allir gætu hreyft sig eftir sínu höfði. Eldra fólk gæti kennt þeim yngri gömlu dansana, s.s. polka, Vals og tvist. Yngra fólkið sæi um að kenna þeim eldri hipp hopp og ofl. Svo er frjálsa aðferðin og kannski afró. Þetta mætti tengja kaffihúsi og sölu á heimagerðu bakkelsi og hannirðum. Hvers vegna viltu láta gera það? Mér finnst dansinum ekki gert nógu hátt undir höfði og ekki lögð næg áhersla á að dans er bæði íþrótt og list. Flest allir geta dansað og hafa gott og gaman af. Þeir sem ekki geta dansað finnst gaman að horfa á. Þeir sem eru í hjólastól finnst líka gaman að dansa. Það vantar meiri fjölbreytni. Það eru ekki allir sem treysta sèr á skauta, eða að fara á heilt dansnámskeið. Það mættu vera þemadagar í miðri viku seinnipartinn og frjálsara um helgar.

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Hugmyndin felur í sér verulegan rekstrarkostnað og fellur því ekki að reglum verkefnisins. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til viðkomandi sviðs innan borgarinnar. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedils-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-almennar-upplysingar-2020-2021. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information