Hjólastígar

Hjólastígar

Hvað viltu láta gera? Gera sér hjólastíga eða breikka núverandi stíga þar sem mest hjólaumferð er. Hvers vegna viltu láta gera það? Til að reyna að koma í veg fyrir hjólreiðaslys. T.d. göngustígurinn sem liggur niður við Grafarvoginn norðan megin. Það liggja að honum tröppur eða brattir stígar. Þaðan koma hlaupandi börn og gangandi vegfarendur sem eru í stór hættu vegna hjólreiðamanna sem fara oft ansi hratt yfir. Annar möguleiki og ódýrari er að aðgreina gangandi og hjólandi umferð þar sem göngu/hjólastígar koma þvert á hjólandi umferð.

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem uppbygging hjólreiðastíga er í öðru ferli innan borgarkerfisins og því ekki hægt að kjósa um það að svo stöddu. Hugmyndinni verður vísað sem ábendingu inn í þá vinnu hjá samgöngudeild umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information