Gangbraut og/eða gönguljós yfir Laugarnesveg við Kirkjusand

Gangbraut og/eða gönguljós yfir Laugarnesveg við Kirkjusand

Hvað viltu láta gera? Setja gangbraut og/eða gönguljós yfir Laugarnesveg við Kirkjusand Hvers vegna viltu láta gera það? Umferðarhraði á Laugarnesvegi er oft nokkuð mikill og þar yfir fer þó nokkur fjöldi gangandi vegfarenda. Sá fjöldi mun aukast enn meira með tilkomu nýja hverfisins á Kirkjusandsreitnum. Á myndinni er miðað við að hafa gangbrautina og/eða gönguljósin við gatnamótin (þar sem er núna hringtorg) en mögulega væri betra að hafa þetta lengra frá hringtorginu þar sem erfitt getur reynst, t.d. fyrir unga vegfarendur að vita hvar bíllinn ætlar út úr hringtorginu. Það væri hægt að meta við frekari vinnslu hugmyndarinnar hjá sérfræðingum Reykjavíkurborgar. Aðalmálið er að það vantar algjörlega gangbraut yfir Laugarnesveg.

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem hún flokkast sem viðhalds- eða öryggisverkefni. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til viðkomandi sviðs innan borgarinnar. Viðhalds- og öryggisverkefni eru ekki lengur hluti af lýðræðisverkefninu Hverfið mitt. Réttur farvegur fyrir slíkar hugmyndir eru á vefnum: https://abendingar.reykjavik.is/. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information