Leyfa sérmerkt hleðslustæði á bílastæðum í Skeiðarvogi

Leyfa sérmerkt hleðslustæði á bílastæðum í Skeiðarvogi

Hvað viltu láta gera? Leyfa íbúum í Skeiðarvogi að sérmerkja stæði sem hleðslustæði fyrir rafbíla gegn því að þeir komi sér upp hleðslustöð fyrir stæðið. Hvers vegna viltu láta gera það? Fjölgun rafbíla hefur verið umtalsverð síðustu ár, en sökum tilhögunar á bílastæðamálum í Skeiðarvogi er erfitt fyrir flesta íbúa að skipta yfir í rafmagn. Þetta myndi gera íbúðum og/eða húsfélögum kleift að koma sér upp hleðsluaðstöðu án þess að eiga á hættu að komast ekki í hana sökum ágangs í stæðin.

Points

Mjög gott mál.

Mikilvægt fyrir okkur, íbúa í Skeiðarvogi að geta skipt yfir í rafbíl.

Virkilega þarft og umhverfisvænt.

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Fjölgun og uppbygging hleðslustöðva í borginni er í ferli annars staðar í borgarkerfinu og verður hugmyndum um staðsetningar hleðslustöðva komið áfram sem ábendingum í þá vinnu. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information