Á græna svæðinu milli Brúnalands og Goðalands er ágætis fótboltavöllur sem er þó lítið notaður. Ástæðan fyrir því er að ástandið á grasinu er lélegt, sérstaklega í mörkunum. Þetta mætti eflaust bæta án þess að fara í mjög kostnaðarsamar framkvæmdir og völlurinn yrði betur nýttur af krökkunum í hverfinu.
Fín staðsetning á fótboltavelli en er lítið nýttur í dag vegna ástandsins á grasinu
Krakkarnir eru að reyna að nota vellina en hætta fljótlega þar sem þau koma fljótt heim lemstruð eftir holur, mold og möl sem eru á völlunum
Þessi hugmynd var færð úr Hverfið mitt 2016 og hægt er að finna hana hér: https://hverfid-mitt-2016.betrireykjavik.is/post/8086
Mikil synd að þessi völlur nýtist ekki betur sökum bágs ástands. Staðsetningin frábær og fjarri allri umferð.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation