Fjölbýlishús byggt oná Austurver

Fjölbýlishús byggt oná Austurver

Hvað viltu láta gera? Láta kanna hvort hægt er að byggja fjölbýlishús sem er jafnhátt og hús Landsvirkjunar á Austurveri norðanmegin (fyrir ofan Krónuna og Læknavaktina). Hvers vegna viltu láta gera það? Hægt að byggja fjölbýlishús sem er ofan á þjónustumiðstöð.

Points

Algjörlega hægt að nýta þennan reit mun betur og allt umhverfið. Fjölbýli ofan á myndi geta kostað niðurgrafinn bílakjallar undir núverandi bílastæði og þannig væri hægt að fegra umhverfi á götuhæð og bæta aðgengi gangandi.

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Þín hugmynd var ekki metin tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem ekki er um að ræða eiginlega nýframkvæmd. Hugmyndir er falla innan verkefna og valdheimilda Reykjavíkurborgar verður komið áfram sem ábendingu til viðeigandi deilda innan stjórnsýslu borgarinnar. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information