Bæta lýsingu við Álftamýri

Bæta lýsingu við Álftamýri

Hvað viltu láta gera? Mjög léleg birta er í Álftamýri miðað við aðrar götur, til dæmis Safamýri. Hvers vegna viltu láta gera það? Með því að bæta lýsingu verður gatan öruggari yfir dimmustu mánuðina.

Points

Klárlega þörf á þessu, nauðsynlegt upp á öryggi gangandi vegfarenda, sérstaklega barna á leið í skóla.

Mjög ábótavant á lýsingu í Álftamýri

Lýsing í Álftamýri er núna mjög léleg en var það ekki áður, einnig er hún núna mjög léleg í mörgum öðrum götum og hverfum í Reykjavík. Það er nauðsynlegt að bæta sem fyrst lýsinguna upp á öryggi að gera.

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Hugmyndin þín snýr að vinnu sem þegar er áformuð á næstu misserum og er þ.a.l. í öðru ferli. Hún er því ekki tæk í kosningu í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information