Hjólastígur á Geirsgötuna

Hjólastígur á Geirsgötuna

Hvað viltu láta gera? Tengja hjólastíginn frá Hörpunni alveg niður að Granda. Og hafa stíginn þannig að hjólin hafi augljósan forgang á hjólin, við erum útí í kuldanum ekki innií bílnum. Það er ein akgreinin á Geirsgötu yrði breytt í hjólreiðastíg. Hvers vegna viltu láta gera það? Hvetja fólk til að hjóla meir. Það væri öruggara fyrir hjólreiðamenn.

Points

Ég held að þetta sé nú þegar í skipulagi, en um að gera að flýta fyrir þessu. Myndi tengja íbúa í miðborg betur við verslun út á Granda.

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem uppbygging hjólreiðastíga er í öðru ferli innan borgarkerfisins og því ekki hægt að kjósa um það að svo stöddu. Hugmyndinni verður vísað sem ábendingu inn í þá vinnu hjá samgöngudeild umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar. Einnig er um er að ræða þjóðveg í þéttbýli og breytingar því á forræði Vegagerðarinnar sem er veghaldari þjóðvega. Vegagerðin og Reykjavíkurborg eiga farsælt samstarf um úrbætur á þjóðvegum. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Einkabílinn þarf ekki að víkja fyrir einhverjum aumingjum á hjólum.

Hjól í borgum er framtíðin, með rafmagnshjólin og hlaupahjólin þeir sem hugsa annað eru bara gamlar tuskur.

þetta mun margfalda aðgengi og öryggi hjólandi fólks - þetta er frábær hugmynd!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information