kajak geymsla

kajak geymsla

Hvað viltu láta gera? Vil að það verði ûtbúinn skúr sem hægt er að geyma kajaka í. Skúrinn verður nálægt sjónum og læstur. Erum svo heppin að búa alveg við sjóinn og gerum auðveldara fyrir okkur að býra okkur þessa perlu sem við búum við. Margir sem hér búa, eiga kajaka og það er stundum ansi langur og erfiður gangur með kajakana niður að sjó. Þetta fyrirkomulag þekkist víða í og við höfuðborgina. Hvers vegna viltu láta gera það? Búum svo nálægt sjónum og þetta myndi auðvelda þeim sem vilja fara í þetta sport, að hafa geymslu og gott aðgengi.

Points

Þarf aðstöðu a fleiri stöðum😍

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Hugmyndin felur í sér verulegan rekstrarkostnað og fellur því ekki að reglum verkefnisins. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til viðkomandi sviðs innan borgarinnar. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedils-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-almennar-upplysingar-2020-2021. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information