"Skrýtni róló" á milli B- og G-landa í Fossvogi

"Skrýtni róló" á milli B- og G-landa í Fossvogi

Hvað viltu láta gera? Gagngerra endurbóta er þörf á leikvellinum fyrir neðan Dalaland, á milli B- og G-landa í Fossvogi. Um er að ræða stórt svæði sem býður upp á mikla möguleika. Það er mikið notað þar sem hann er staðsettur fyrir neðan leikskólann Furuskóg við Efstaland og foreldrar og börn eiga oft leið þarna um en það vantar fleira við að vera. Róluvöllurinn sjálfur er lagður með möl sem er afar óhreinlegt og erfitt yfirferðar og vont fyrir börnin ef þau detta. Leiktækin eru orðin gömul og lúin og sum þeirra höfum við ekki enn áttað okkur á hvernig skuli nota auk þess sem ein upphækkuð róla á milli staura er slysagildra þar sem börnin eiga það til að detta af henni. Auk þess að endurnýja leiktækin væri til dæmis hægt að setja upp útigrill, bekki og borð og bæta við gróðri í kringum svæðið. Hvers vegna viltu láta gera það? Hér er vannýtt tækifæri til að gera betur, þetta gæti verið einstaklega fallegt og skemmtilegt leiksvæði.

Points

Algjörlega sammála. Mikil þörf á endurnýjun enda er þessi leikvöllur MIKIÐ notaður af börnum.

Hjartanlega sammála. Miklir möguleikar á þessu skemmtilega svæði. Mölin á svæðinu er núna full af drasli, flugeldarusli og öðrum óhreinindum. Með fyrirvara um framkvæmd væri mögulega hægt að setja ærslabelg á svæðið?

Ég er hjartanlega sammála þessari uppástungu; þessi réttilega nefndi skrýtni róló er ekki skrýtinn á skemmtilegan hátt - heldur er hann bara illa skipulagður, illa nýttur og að miklu leyti illskiljanlegur. Ný leiktæki (ærslabelgur, jafnvel?) og notalegt setusvæði væru upplagðar breytingar, því þessi blettur í hjarta hverfisins nýtist engum almennilega eins og staðan er núna.

👍🙌 perfect 👪

Algjörlega sammála. Þessi leikvöllur ber nafn með rentu, hann er mjög skrýtinn og ég skil ekki hvernig þessi leiktæki voru hugsuð.

Oft var nú þörf! Löngu tímabært að endurnýja þetta svæði og ekki væri verra ef þar yrði skemmtilegt leiksvæði sem hentaði börnum og jafnvel allri fjölskyldunni sbr. þær góðu hugmyndir sem fram hafa komið.

Það þarf ekki rök. Myndin af "skrýtna róló" segir allt sem segja þarf. Löngu kominn tími á svæðið allt milli B og G landa. Flestir sækja leiksvæðin yfir í Kópavog á þessu svæði.

Löngu kominn tími til að svæðin milli B og G landa sem hafa setið á hakanum síðustu ár séu endurnýjuð. Þar er skrýtni róló fremstur meðal jafningja.

Væri til í að sjá ærslabelg á þessu svæði 👏 Frábær tillaga að gera einhverjar úrbætur þarna 👌

Stórt svæði með fá og illa nýtt leikföng. Skrítna rólan er hættuleg margir hafa dottið aftur fyrir sig. Margir sem nota þennan leikvöll.

Svo löngu tímabært! En finnst bara svo galið að eðlilegt viðhald á leikvelli fari ár eftir ár í gegnum þessa kosningu ásamt körfuboltavellinum á sama stað og fótboltavellinum fyrir neðan. Þessi leikvöllur með sín stórfurðulegu "leiktæki" þarfnast yfirhalningar.

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Hugmyndin þín var metin tæk* af fagteymi sérfræðinga verkefnisins og er ein af þeim hugmyndum sem stillt verður upp á fundi íbúaráðs Háaleitis og Bústaða á fimmtudaginn næstkomandi þann 6. maí milli kl. 17-19 þar sem valdar verða 25 af þeim hugmyndum sem verða á kjörseðli hverfisins í kosningunni í haust. Hér er hlekkur á Facebook event fundarins sem verður opinn og streymt beint: https://www.facebook.com/events/202843634962715. Í einhverjum tilfellum hafa hugmyndir verið sameinaðar þar sem þær hafa verið taldar mjög áþekkar annarri/öðrum hugmyndum og í nokkrum tilfellum höfum við gert litlar breytingar á hugmyndum til þess að þær falli betur að reglum verkefnisins.* Fundir íbúaráðanna þar sem valið verður hvaða hugmyndir fara á kjörseðla hverfanna næsta haust verða formlegir aukafundir þar sem allir geta tekið þátt. Við viljum eindregið hvetja þig til þess að taka þátt í fundinum í þínu hverfi og vekja athygli á honum og hugmynd þinni eins og þú hefur tækifæri til. Dagsetningar allra fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Kæri hugmyndahöfundur, kosningu í verkefninu Hverfið mitt lauk þann 14.október sl. niðurstöður kosninga má sjá á www.hverfidmitt.is, Alls voru 111 hugmyndir kosnar og munu þær koma til framkvæmda á árinu 2022. Þín hugmynd hlaut ekki kosningu að þessu sinni. Næsta haust hefst hugmyndasöfnun að nýju og gefst þá Reykvíkingum aftur tækifæri til þess að setja inn hugmyndir að verkefnum sem gera hverfi borgarinnar betri og skemmtilegri. Við þökkum þér kærlega fyrir þína þátttöku og viljum hvetja þig til þess að halda áfram að vera virkur þátttakandi í málefnum hverfisins. Ýmsar leiðir eru fyrir borgarbúa til þess að hafa áhrif á þróun borgarsamfélagsins og síns nærumhverfis. Íbúaráð Reykjavíkurborgar eru lifandi samstarfsvettvangur samráðs íbúa, félagasamtaka, atvinnulífs og borgaryfirvalda. Virk íbúaráð eru í öllum hverfum Reykjavíkur og funda þau í hverjum mánuði yfir vetrarmánuðina. Nánari upplýsingar er að finna hér: https://reykjavik.is/ibuarad. Einnig viljum við vekja athygli á því að ábendingavefurinn er alltaf opinn fyrir borgarbúa sem vilja láta vita af einhverju sem betur má fara í umhverfinu eða þarfnast lagfæringar: https://abendingar.reykjavik.is. Bestu kveðjur, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information