Hraðahindanir í íbúagötur í löndunum í Fossvogi

Hraðahindanir í íbúagötur í löndunum í Fossvogi

Hvað viltu láta gera? Hraðahindranir í íbúagötur. Jafnvel hægt að setja mjóu, hörðu hraðahindranirnar. Hvers vegna viltu láta gera það? Ég vil láta setja upp hraðahindranir í íbúagötur þar sem börn eru oft við leik. Fólk í Fossvoginum þarf líka í mörgun tilfellum að ganga yfir göturnar til þess að komast að bílastæðum. Það er 30 km hraði í flestum íbúagötum, sem er allt of mikið til að byrja með. Ökumenn virða hámarkshraða að vettugi og gefa nánast í eftir að hafa beygt inn göturnar. Þetta er ekki boðlegt og þarf að laga hið snarasta.

Points

Ekki litlu mjóu. Gigtarsjúklingar og aðrir verkjasjúklingar upplifa hnykk sama hve hægt er farið sem er óþarfa aukaálag á þeirra líkama. Samkvæmt sumum fara þeir líka illa með dempara. Styð hraðahindrun, bara ekki þessar mjóu.

Hvað með að hafa frekar þrengingar t.d. með gróðri?

Hverjir eru það sem eiga erindi inn í íbúagöturnar? Eru þetta ekki mest allt botnlangar?

Hraðahindranir og þrengingar draga úr slysahættu. Hins vegar auka hraðahindranir hávaða, slit á bílum og verulega mengun lofttegunda eins og CO2 og NO2 og skaðlegra agna en ef umferðarflæði er jafnara. Því legg ég til að íbúagötur verði frekar þrengdar.

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem hún flokkast sem viðhalds- eða öryggisverkefni. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til viðkomandi sviðs innan borgarinnar. Viðhalds- og öryggisverkefni eru ekki lengur hluti af lýðræðisverkefninu Hverfið mitt. Réttur farvegur fyrir slíkar hugmyndir eru á vefnum: https://abendingar.reykjavik.is/. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information