Pósthús í miðbær

Pósthús í miðbær

Hvað viltu láta gera? Pósthús í miðbær Hvers vegna viltu láta gera það? Þarf ég virkilega að útskýra af hverju þetta er mikilvægt? Nefndu aðra höfðaborg án póstþjónusta í miðbær - það er alveg fráleit hugmynd að við sem vinna og búum í miðbænum þurfum að keyra í vesturbæinn til að sækja og senda pakkan- eins svo stendur við höfum ekki einu sinni pakkaskáp í miðbænum. Að loka pósthúsinu í Austurstræti hefði aldrei átt að eiga sér stað. Lítið pósthús gæti auðveldlega virkað í einni af tugum tómra lundaverslana.

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem verkefni hugmyndarinnar er ekki innan verkefna Reykjavíkurborgar eða ekki á borgarlandi. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til Póstsins. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Heyr! Það er einkennilegt að maður þurfi að hjóla út á Mela í öllum veðrum til að sækja póstþjónustu. Hún á að vera miðsvæðis.

Að sjálfsögðu ..!! Það var áfall fyrir okkur sem búum við miðbæjinn að sá á eftir pósthúsinu okkar.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information