Tjarnargata

Tjarnargata

Hvað viltu láta gera? Legg til að á suður hluta Tjarnargötu verði einstefna til suðurs. Hvers vegna viltu láta gera það? Rökin eru tvenns konar. Í fyrsta lagi koma bílar á miklum hraða í Tjarnargötuna af Hringbrautinni. Þetta er því spurning um að auka öryggi á þessum hluta Tjarnargötunnar. Hitt atriðið snýr að því að gatan er mjög þröng og erfitt fyrir akandi að mætast þar sem bílum er lagt beggja vegna götunnar.

Points

Hárrétt!

Bæta má við að hætta skapast þegar bílar mætast á gatnamótum Hringbrautar og Tjarnagötu. Bill sem kemur vestur Hringbraut og hyggst beygja inn Tjarnargötu hindrar útsýni bílstjóra sem ætlar að fara inn á Hringbrautina. Þessi staða skapar einnig hættu fyrir gangandi vegfarendur sem eru á leið yfir göngubrautina á þessum stað.

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Skipulagsferill þessar hugmyndar væri of langur fyrir tímaramma verkefnisins eða hugmyndin samræmist ekki gildandi skipulagi á svæðinu. Einnig er umrædd hugmynd í skoðun annars staðar í borgarkerfinu. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til samgöngudeildar umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information