Gönguljós á Hverfisgötu við Frakkastíg eða Vitastíg

Gönguljós á Hverfisgötu við Frakkastíg eða Vitastíg

Hvað viltu láta gera? Setja upp gönguljós yfir Hverfisgötuna. Það er mjög mikilvægt að auka öryggi gangandi vegfarenda yfir Hverfisgötuna. Má þar sérstaklega nefna grunnskólabörn á leið í tónlistarskólann á Lindargötu sem eru sett í lífshættu við að fara yfir þessa umferðaþungu götu vegna bíla, hjóla og rafskútera sem ganga í báðar áttir. Hvers vegna viltu láta gera það? Börn í tónlistarnámi eru með fulla stundaskrá af hóptímum, tónfræði, hljómsveitaræfingu og einkatímum og gætu þurft að fara 16-20x fram og til baka yfir Hverfisgötuna í hverri viku. Það er mikilvægt að þau geti sjálf farið í tónlistarskólann þegar þau hafa aldur til þannig að foreldrar þurfi ekki að fara með í hvert einasta skipti. Þetta eykur öryggi grunnskólabarna á leið í tónlistarskólann sem og annarra vegfarenda. Veitir foreldrum sálarfrið að vita að börnin séu örugg á leið í tónlistarskólann sinn. Þetta gagnast einnig öðrum vegfarendum sem vilja ganga niður að sjó, að skoða Sólfarið og njóta útsýnis yfir sundin. Það voru alltaf gönguljós yfir Hverfisgötuna en þau voru tekin þegar gatan var endurgerð.

Points

Sammála. Þetta á ekki síður við um börn sem eru á leið í Austurbæjarskóla. Einnig hefur umferðin af Laugarvegi og niður Frakkastíg aukist mikið.

Myndi tryggja öryggi gangandi vegfaranda t.d. barna sem sækja Austurbæjarskóla en búa norðan megin Hverfisgötu

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem hún flokkast sem viðhalds- eða öryggisverkefni. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til viðkomandi sviðs innan borgarinnar. Viðhalds- og öryggisverkefni eru ekki lengur hluti af lýðræðisverkefninu Hverfið mitt. Réttur farvegur fyrir slíkar hugmyndir eru á vefnum: https://abendingar.reykjavik.is/. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information