Hundasvæði við BSÍ

Hundasvæði við BSÍ

Hvað viltu láta gera? Við BSÍ er hundagerði, þar sem hægt er að sleppa hundum sínum lausum. Svæðið stendur á 'túni' sem ekki er notað í neitt annað, en nokkrum metrum frá, mætti ekki stækka þetta svæði töluvert og mögukega bæta örlítið aðkomu? Hvers vegna viltu láta gera það? Plássið nýtist ekki í neitt annað, en það er svo sannarlega þörf á meira plássi fyrir hunda að leika sér, sérstaklega þar sem hægt er að sleppa þeim og leyfa þeim að hlaupa.

Points

Akkúrat sem vantar fyrir alla hundaeigendur miðbæjarins og nálægt.

Vantar sárlega stærri og betri hundasvæði í göngufæri við miðbæinn. Þetta yrði til mikilla bóta fyrir hundaeigendur og hunda þeirra.

Það vantar sárlega svæði þar sem hleypa má hundum lausum og þau 2 svæði vestan Elliðaáa, þ.e. þetta gerði og annað við Laugardalinn, eru alltof lítil og óspennandi. Hægt væri að stækka þetta gerði um a.m.k. helming með litlum tilkostnaði. Sting einnig upp á að setja það meiri gróður og mögulega stórt grjót eða eitthvað sem minnir á ósnerta náttúru.

Sem nýr hundaeigandi í 101 styð ég þessa hugmynd heilshugar. Myndi vilja sjá rausnarlega stækkun á svæðinu, etv. grjót/hól eða annað til að gera svæðið náttúrulegra og gott væri að fá ljósastaur svo svæðið nýtist líka í myrkasta skammdeginu.

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Hugmyndin þín var metin tæk* af fagteymi sérfræðinga verkefnisins og verður ein af þeim hugmyndum sem stillt verður upp á fundi íbúaráðs Miðborgar á miðvikudaginn þann 14. apríl milli kl. 17-19 þar sem valdar verða 20 af þeim hugmyndum sem verða á kjörseðli hverfisins í kosningunni í haust. Hér er hlekkur á facebook event fundarins sem verður opinn og streymt beint: https://www.facebook.com/events/465260328253674. Í einhverjum tilfellum hafa hugmyndir verið sameinaðar þar sem þær hafa verið taldar mjög áþekkar annarri/öðrum hugmyndum og í nokkrum tilfellum höfum við gert litlar breytingar á hugmyndum til þess að þær falli betur að reglum verkefnisins.* Fundir íbúaráðanna þar sem valið verður hvaða hugmyndir fara á kjörseðla hverfanna næsta haust verða formlegir aukafundir þar sem allir geta tekið þátt. Við viljum eindregið hvetja þig til þess að taka þátt í fundinum í þínu hverfi og vekja athygli á honum og hugmynd þinni eins og þú hefur tækifæri til. Dagsetningar allra fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Kæri hugmyndahöfundur Uppstilling kjörseðla fyrir kosningarnar í íbúalýðræðisverkefninu Hverfið mitt fór fram á opnum fundum íbúaráða Reykjavíkurborgar frá 22. mars til 20. maí sl. og liggur nú niðurstaða fyrir í öllum hverfum. Þín hugmynd var því miður ekki valin áfram og verður því ekki á kjörseðlinum að þessu sinni. Nánari upplýsingar um fyrirkomulagið má finna hér: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt Í fyrsta skipti var öllum boðin þátttaka í þessum lið ferilsins, þ.e. að velja hugmyndir á kjörseðilinn að yfirferðar- og samráðsferli loknu. Þátttakan í uppstillingunni fór fram úr björtustu vonum og ljóst að margar góðar hugmyndir verða á kjörseðlum allra hverfa Reykjavíkur í kosningunni í haust. Á www.hverfidmitt.is má sjá þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 30. september - 14. október næstkomandi. F.h. Hverfið mitt Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information