Hringleið um Öskjuhlíð, gönguskíðafær

Hringleið um Öskjuhlíð, gönguskíðafær

Hvað viltu láta gera? Leggja hringleið um Öskjuhlíðina, sem er nægjanlega breið til þess að hægt sé að troða á henni gönguskíðabraut. Eins væri æskilegt að gott aðgengi væri að brautinni, gangandi eða með strætó. Hvers vegna viltu láta gera það? Ég er bíllaus, og nenni ekki að fara upp í Heiðmörk eða Bláfjöll á gönguskíði. Ég teldi það vera góða þjónustu við íbúa að hægt væri að troða gönguskíðabrautir sem víðast í borgarlandinu þegar snjóar á vetrum, svo hægt sé að rölta að heiman beint á brautina með skíðin á öxlinni.

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Þín hugmynd var ekki metin tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem ekki er um að ræða eiginlega nýframkvæmd ásamt því að hugmyndin felur í sér verulegan rekstrarkostnað. Hugmyndinni þinni verður komið áfram sem ábendingu til ÍTR. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information