Leikvöllur og áningarstaður á horni Tunguvegar og Ásenda

Leikvöllur og áningarstaður á horni Tunguvegar og Ásenda

Hvað viltu láta gera? Setja nýjan leikvöll fyrir krakka, æfingasvæði fyrir fullorðna, bekki og hvíldarsvæði við horn Tunguvegar og Ásenda. Hugmynd væri líka að setja jafnvel útigrill sem íbúar í nærumhverfi gætu nýtt sér í hverfahitting, planta fleiri runnum og útbúa litla hóla. Hvers vegna viltu láta gera það? Nú þegar hefur hjólastígur og göngustígur verið uppfærður, ásamt hljóðmön og breytingar á svæðinu fyrir "neðan" Ásenda eru hafnar. Umferð hjólandi og gangandi (úr hverfinu og öðrum hverfum) er mikil og eykst með öllum umbótum sem hafa átt sér stað hingað til. Þetta tóma svæði, sem er núna bara hálfgerð mýri, er kjörið til að stoppa við í göngu og hjólaferðum sér til yndis eða á leið heim úr vinnu. Þá held ég að sé mikilvægt að það sé eitthvað fyrir alla aldurshópa á þessu svæði því það er bæði skjólsælt og sólríkt.

Points

Vá flott tillaga ,, pls gera þetta :-)

Aukin fjölbreitni á möguleikum til útiveru í horni smáíbúðahverfisins

Algjörlega frábær hugmynd að nýtingu þessa auða svæðis. Yrði vel nýtt af minni fjölskyldu!

Þetta er flott hugmynd en hef áhyggjur að það verði of nálægt stórti götu með mikið umferð og hjólastígurinn þarna er frekar mikið notaður líka ef það verða börn þarna gæti verið hættusvæði? En annars góð hugmynd, spurning um að setja girðingu eða loka þetta að eitthvað?

Snilldar hugmynd. Núna er verið að gera vegg og laga göngu og hjólastígana þannig að Miklabraut er ekki lengur eins nálægt og hún var. Eins og er er þetta svæði ekki notað og sérstaklega því það er frekar blautt. Það myndast tjarnir og pollar á þessu svæði.

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Hugmyndin þín var metin tæk* af fagteymi sérfræðinga verkefnisins og er ein af þeim hugmyndum sem stillt verður upp á fundi íbúaráðs Háaleitis og Bústaða á fimmtudaginn næstkomandi þann 6. maí milli kl. 17-19 þar sem valdar verða 25 af þeim hugmyndum sem verða á kjörseðli hverfisins í kosningunni í haust. Hér er hlekkur á Facebook event fundarins sem verður opinn og streymt beint: https://www.facebook.com/events/202843634962715. Í einhverjum tilfellum hafa hugmyndir verið sameinaðar þar sem þær hafa verið taldar mjög áþekkar annarri/öðrum hugmyndum og í nokkrum tilfellum höfum við gert litlar breytingar á hugmyndum til þess að þær falli betur að reglum verkefnisins.* Fundir íbúaráðanna þar sem valið verður hvaða hugmyndir fara á kjörseðla hverfanna næsta haust verða formlegir aukafundir þar sem allir geta tekið þátt. Við viljum eindregið hvetja þig til þess að taka þátt í fundinum í þínu hverfi og vekja athygli á honum og hugmynd þinni eins og þú hefur tækifæri til. Dagsetningar allra fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Kæri hugmyndahöfundur Uppstilling kjörseðla fyrir kosningarnar í íbúalýðræðisverkefninu Hverfið mitt fór fram á opnum fundum íbúaráða Reykjavíkurborgar frá 22. mars til 20. maí sl. og liggur nú niðurstaða fyrir í öllum hverfum. Þín hugmynd var því miður ekki valin áfram og verður því ekki á kjörseðlinum að þessu sinni. Nánari upplýsingar um fyrirkomulagið má finna hér: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt Í fyrsta skipti var öllum boðin þátttaka í þessum lið ferilsins, þ.e. að velja hugmyndir á kjörseðilinn að yfirferðar- og samráðsferli loknu. Þátttakan í uppstillingunni fór fram úr björtustu vonum og ljóst að margar góðar hugmyndir verða á kjörseðlum allra hverfa Reykjavíkur í kosningunni í haust. Á www.hverfidmitt.is má sjá þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 30. september - 14. október næstkomandi. F.h. Hverfið mitt Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information