Hljóðmön hækkuð á Bústaðarveg við Ásgarð og Réttarholtsveg

Hljóðmön hækkuð á Bústaðarveg við Ásgarð og Réttarholtsveg

Hvað viltu láta gera? Núverandi hljóðmön fyrir framan raðhúsin við Ásgarð og Réttarholtsveg hefur lækkað mjög á síðustu árum og er nú rétt svo lágur hóll. Íbúar hafa margoft óskað eftir því við Reykjavíkurborg að mönin sé hækkuð svo minni hávaði af götunni berist inní hverfið. Þá myndi hærri hljóðmön líka veita hverfinu (og sérstaklega fremstu húsunum) aukið næði frá bílaumferðinni. Tek fram að hljóðmönin tilheyrir svæði Reykjavíkurborgar. Hvers vegna viltu láta gera það? Það berst mikill hávaði af bústaðarvegi inní raðhúsahverfið og óskað er eftir að hljóðmön sé hækkuð.

Points

Þessar hljóðmanir eru á einkalóðum húsanna, og því ekki eitthvað sem á endilega heima hérna, þó ég styðji hugmyndina 100% (ég bý í húsi með svona hljóðmön).

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem verkefni hugmyndarinnar er ekki innan verkefna / valdheimilda Reykjavíkurborgar eða ekki á borgarlandi. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information