Megrun íbúagatna í hverfinu

Megrun íbúagatna í hverfinu

Hvað viltu láta gera? Breikka gangstéttir, mjókka götur og fækka bílastæðum (sem er offramboð á). Bæta við gróðri, lýsingu, bekkjum o.fl. fyrir plássið sem fæst í staðinn. Íbúagötur eru oft 10 metra breiðar með stæðum beggja vegna, á meðan varla er hægt að mætast á gangstéttum. Breiðar göturnar valda því að ökumenn aka hraðar og stór gatnamót með rúnuðum hornum leyfa ökumönnum að taka beygjur á miklum hraða. Á sama tíma er bílum lagt við gatnamót sem hindra útsýni og gera gangandi erfitt með að sjást og þvera á öruggan hátt. Hvers vegna viltu láta gera það? Gera hverfið okkar mannvænna og öruggara fyrir gangandi vegfarendur. Draga úr umferðarhraða sem er allt of hár í íbúagötum.

Points

Það er algjört bull að offramboð sé af bílastæðum í hverfinu, lýsing tillögumanns á því hvernig bílum er lagt bendir ekki til þess heldur þvert á móti

Göturnar eru svo breiðar hér að það er altalað að það sé gott að flytja í þetta hverfi ef menn eru með 10+ bíla á heimili. Göturnar eru ekki bara troðfullar af kyrrstæðum bílum heldur eru þær líka hættulegar og ekki nýtanlegar til neins annars en fyrir bílaumferð. Gangstéttirnar eru alltof mjóar til að taka við öllum þeim fjölbreytta ferðamáta sem er orðinn áberandi. Það er ekki gott ef fólk neyðist til að nota bíla vegna hræðslu við örtröð á gangstéttum.

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Skipulagsferill þessar hugmyndar væri of langur fyrir tímaramma verkefnisins eða hugmyndin samræmist ekki gildandi skipulagi á svæðinu. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til samgöngudeildar umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information